Niðurskurður á Hsb kominn inn að beini - umfjöllun á N4
Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi var nýverið til umföllunar á sjónvarpsstöðinni N4 en þar kom fram að Heilbrigðisstofnunin þarf enn eitt árið að skera niður í rekstri sínum en stofnunin hefur orðið að skera niður um þriðjung frá árinu 2006. Að sögn Valbjörns Steingrímssonar forstjóra Hsb er niðurskurðurinn nú kominn inn að beini.
Valbjörn segir niðurskurðinn hafa verið mikið högg fyrir samfélagið. Nú eru um 60 manns á launaskrá Hsb en stöðugildin komin undir 40, fyrir um sex árum voru um 80 starfsmenn á launaskrá og 56 stöðugildi. Á næsta ári er þeim gert að skera niður um 14 milljónir til viðbótar en að sögn Valbjörns er það einfaldlega of mikið.
Hér má sjá innslagið á N4 en þar er einnig rætt við Bóthildi Halldórsdóttur starfsmanni Hsb. Hún vill fá svör við því hvað eigi að gera við sjúklingana sem á stofnuninni dvelja: „Eiga þeir að liggja heima og deyja drottni sínum þar?“ spyr hún en segir vera fátt um svör.