Niðurstaðan vonbrigði

-Ásmundur Einar hefur notið víðtæks trausts og verið einn ötulasti talsmaður sjónarmiða VG á Alþingi. Því er þessi niðurstaða mikil vonbrigði. Þrátt fyrir að maður sé ósammála þessari ákvörðun Ásmundar, ekki síst í ljósi þeirra stóru mála sem nú eru undir, er ekki annað en hægt að virða hana í ljósi þess sem hefur gengið á og þeirrar óbilgjörnu framgöngu sem Samfylkingingin hefur komist upp með í stjórnarsamstarfinu, segir Bjarni Jónsson oddviti Vinstri grænna í Skagafirði aðspurður um afstöðu hans til úrsagnar Ásmundar úr þingflokki VG.

Um viðbrögð sín vegna útkomu kosninganna um vantraust á  ríkisstjórnina segir Bjarni að hann sjái ekki að staða ríkisstjórnarinnar eða landsbyggðarinnar myndi batna við að bæta við tveimur einsmáls framsóknarkrötum sem nú falbjóða sig fyrir lítið.

-Nær er að leita sátta og þjappa aftur saman því fólki sem kosið hefur verið til trúnaðarstarfa fyrir VG og veita Samfylkingunni meira aðhald í stjórnarsamstarfinu. Styrkur vinstri ríkisstjórnarinnar felst ekki í mannfjölda stjórnarliðsins heldur sátt meðal þess um grunngildi vinstrimanna og sameiginlegar hugsjónir þeirra sem að baki ríkisstjórninni standa.

Er stjórnin starfhæf að þínu mati með þennan tæpa meirihluta þingmanna?

-Það mun koma í ljós á næstu vikum og mánuðum hvort að okkur Vinstri grænum tekst að skilja ágreiningsmál að baki og fylkja okkur saman að nýju um þau grunngildi sem flokkurinn var stofnaður á. Þar reynir á marga að leita lausna þegar þörf er á og veita þá forystu sem allir geta fylgt sér um. Að sama skapi þurfa aðrir þeir sem kosnir hafa verið til trúnaðarstarfa fyrir VG að leggja sig betur fram um að leita málamiðlana í ágreiningsmálum og þjappa aftur saman fólkinu á bak við sig sem treystir engum betur en VG til að leiða endurreisnarstarfið eftir þau ragnarök sem hrunflokkarnir þrír; Framsókn, Sjálfstæðsflokkur og Samfylking leiddu yfir okkur,segir Bjarni.

-Þó leiðir hafi skilið í bili hjá þingmönnum VG vegna ágreiningsmála bendi ég á að þremenningarnir sem hafa yfirgefið þingflokk VG eru enn í Vinstri hreyfingunni grænt framboð. Ég legg áherslu á að enn er lag að leiða aftur saman þá vösku sveit VG þingmanna sem þjóðin kaus í síðustu alþingiskosningum til að leiða stjórn landsins.

Fleiri fréttir