Nóg að gera hjá Björgunarsveitinni Strönd

Það er búið að vera í nógu að snúast í snjónum hjá Björgunarsveitinni Strönd síðustu daga en m.a. moka þurfti af þakinu á rækjuvinnslunni á Skagaströnd og aðstoða fólk við að losa bíla úr snjó. Einnig var farið út á Skaga til að aðstoða ökumann með fastan bíl við Kelduland á þriðjudagskvöldið í snarvitlausu veðri. 

Þá var farið á bryggjuna og mokað úr bát sem var hætt kominn vegna þess hve mikið hafði fennt ofan í hann og mátti ekki miklu muna að hann færi niður. Á heimasíðu Strandar segir að einnig hafi þetta verið svona hinir og þessir snúningar eins og að skutla fólki heim úr leikskólanum og skólanum, moka upp bíla og moka fólk út úr húsum.  Einnig voru tveir bílar aðstoðaðir á miðvikudagskvöldið en þeir sátu fastir hjá Ytri Ey en þar var kominn töluverður snjór á veginn.

Fleiri fréttir