Nóg að gera í boltanum hjá Hvöt

Undanfarnar vikur hefur verið nóg að gera hjá yngri flokkum Hvatar í fótbolta en samkvæmt heimasíðu Hvatar tóku flestir flokkar þátt í Íslandsmótinu innanhúss og stóðu sig mjög vel. Þá hafa flestir flokkar staðið í ströngu undanfarnar helgar á Goða- og Greifamótunum á Akureyri.

Á heimasíðu Hvatar kemur fram að á þessum mótum hafi Hvöt verið í samstarfi ýmist við Kormák eða Fram Skagaströnd. 5. flokkur karla sendi tvö lið til leiks á dögunum og lentu bæði liðin í 5. sæti í sínum deildum sem voru Spænska deildin og Ítalska deildin en liðunum á mótinu er raðað eftir styrkleika í mismunandi deildir.

5. flokkur kvenna keppti á Goðamóti um sl. helgi undir merkjum Hvatar/Fram. „Skemmst frá því að segja að þær stóðu sig frábærlega og unnu sína deild sem var Þýska deildin,“ segir á heimasíðunni.

Þá héldu strákarnir í 3. flokki til Akureyrar helgina 23. – 24. febrúar og spiluðu þar undir merkjum Hvöt/Kormákur en leikið var á stórum velli í 11 manna bolta. „Léku strákarnir þar í styrkleika 2 enda ekki vanir því að leika og æfa á stórum velli eins og önnur lið sem hafa aðstöðu til þess. Það er skemmst frá því að segja að strákarnir stóðu sig virkilega vel og lentu í 2. sæti þrátt fyrir að hafa ekki tapað leik á mótinu en tvö jafntefli komu í veg fyrir sigur á mótinu,“ segir í frétt Hvatar.

Um næstkomandi helgi halda strákarnir í 6. flokki Hvatar norður og taka þátt í sínu Goðamóti. Framundan er einnig Páskamót 6. – 7. flokks stráka og stelpna og verður haldið í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi 20. mars nk.

 

Fleiri fréttir