Nokkur lauf að norðan
Töfrakonur/Magic Women ehf hafa gefið út smásagnasafnið “Nokkur lauf að norðan II”. Í fyrra kom út smásagnasafnið “ Nokkur lauf að norðan” og nú er leikurinn endurtekinn. Á bókarkápu stendur : Í þessu smásagnasafni birtast sögur eftir íslenska höfunda sem tengjast norðrinu okkar sterkum böndum á einn eða annan hátt.
Nú stíga á stokk: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Bóthildur Halldórsdóttir, Þórarinn Torfason, Anna Bryndís Sigurðardóttir, Valdemar Ásgeirsson, Hilmar Örn Óskarsson, Jóhanna Helga Halldórsdóttir, Ívar Snorri Halldórsson, Guðrún Angantýsdóttir, Sæunn Jóhannesdóttir, Elín S. Sigurðardóttir, Birgitta Hrönn Halldórsdóttir, Bylgja Guðrún Brynjólfsdóttir, Lilja Gunnarsdóttir og Jóhanna Kristín Atladóttir.
Sögurnar eru margbreytilegar og spanna flest svið mannlífsins. Töfrakonur óska þess að lesendur njóti laufanna að norðan.