Norðan við hrun –sunnan við siðbót
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Gagnlega hornið
13.05.2014
kl. 09.15
Nú í lok vikunnar, fimmtudag 15. maí og föstudaginn 16. maí, stendur ferðamáladeild Háskólans á Hólum fyrir á ráðstefnunni Norðan við hrun - sunnan við siðbót? Þetta er 8. ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið og viðfangsefni fyrirlesara eru af margvíslegum toga, eins og ráða má af dagskránni.
Lykilfyrirlestur ráðstefnunnar flytur Guðni Th. Jóhannesson, og er yfirskrift hans Saga sögu hrunsins. Skráning á ráðstefnuna, pöntun á gistingu og mat á Hólum er á netfangið booking@holar.is. Nánari upplýsingar er að finna í dagskrá ráðstefnunnar, sem er gríðarlega fjölbreytt.