Norðanátt og þoka sums staðar við ströndina síðdegis

Veðrið á Ströndum og Norðurlandi vestra kl. 15 í dag, 19. ágúst, skv. spá Veðurstofu Íslands. Mynd/vedur.is
Veðrið á Ströndum og Norðurlandi vestra kl. 15 í dag, 19. ágúst, skv. spá Veðurstofu Íslands. Mynd/vedur.is

Hæg breytileg átt og bjart með köflum er á Ströndum og Norðurlandi vestra, en Veðurstofa Íslands spáir norðan 3-8 m/s síðdegis og sums staðar þoka við ströndina. Hiti 8 til 17 stig. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á laugardag:

Norðaustan 5-10 m/s og bjart veður, en skýjað og dálítil súld A-lands og þokubakkar við NV-ströndina. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. 

Á sunnudag og mánudag:

Austan 8-15 m/s syðst, annars hægari vindur. Skýjað með köflum og stöku skúrir S-lands. Áfram hlýtt í veðri. 

Á þriðjudag:

Austanátt og skúrir, en þurrt og bjart N- og V-lands. Hiti breytist lítið. 

Á miðvikudag og fimmtudag:

Úrkomulítið og milt veður.

Fleiri fréttir