Norðanpaunk 2015

Árlegt ættarmót paunkara verður haldið á Laugarbakka dagana 31. júlí til 2. ágúst. Ættarmótið er haldið af félagi áhugamanna um íslenska jaðartónlist og aðeins meðlimir félagsins fá aðgang. Félagsgjald er 4000kr. Skráning fer fram á nordanpaunk@gmail.com.

40 hljómsveitir koma fram, bæðir íslenskar og erlendar. Meðal annars KRUPSKAYA frá Bretlandi, KUML, MISÞYRMING, KÆLAN MIKLA, PINK STREET BOYS og fleiri.
Áfengi er ekki selt á staðnum.
Gistingu er hægt að panta á Hótel Eddu Laugarbakka, gistiheimilinu Löngufit eða tjaldstæðinu Löngufit.
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast hér.

Meðfylgjandi eru myndir frá því í fyrra eftir ljósmyndarana Foto Wolle og Kristíni Gerði.

/fréttatilkynning

Fleiri fréttir