Norðlæg átt næstu daga en snýst svo í suðvestan

Á Ströndum og Norðurlandi vestra veður norðlæg átt 3-8 í dag, skýjað og stöku él, en 5-10 í nótt. Lægir seint á morgun. Frost 0 til 6 stig. Vegir á Norðurlandi vestra eru að mestu auðir samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en þó eru hálkublettir á Siglufjarðarvegi. 

Enn er varað við mjög ósléttum vegi á Þverárfjallsvegi og hraði því tekinn niður í 70 km/klst. Ásþungi er takmarkaður við tíu tonn.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:
Norðlæg átt, 5-10 og léttskýjað S- og V-lands, en dálítil él NA- og A-til. Hiti um og yfir frostmarki SV-til annars frost 0 til 6 stig.

Á fimmtudag:
Suðvestan 5-13 m/s og dálítil él V-lands, en skýjað með köflum A-til. Hiti 1 til 6 stig, en frost 0 til 5 stig á NA- og A-landi.

Á föstudag:
Suðvestlæg átt 3-10 m/s, lítilsháttar úrkoma S- og V-lands en bjartviðri austantil. Hiti víða 2 til 6 stig yfir daginn.

Á laugardag og sunnudag:
Austlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s, en líkur á norðaustan 8-15 á Vestfjörðum. Rigning eða slydda með köflum í flestum landshlutum. Hiti lengst af 1 til 6 stig.

Á mánudag:
Útlit fyrir norðan og norðvestanátt með éljum fyrir norðan, en þurru syðra. Kólnar í bili.

Fleiri fréttir