Norðlensku tenórarnir þrír í maí

Viðburðaríkt ehf. hefur kynnt stórviðburð í tónlistarlífi á Norðurlandi í maí. Þar munu leiða saman hesta sína í fyrsta skipti á þrennum tónleikum þeir Árni Geir Sigurbjörnsson, Óskar Pétursson og Kristján Jóhannsson.

Tónleikarnir verða í Skagastrandarkirkju 29. maí, Miðgarði í Skagafirði 30. maí og í Hofi 31. maí. Á efnisskránni verða íslensk og erlend sönglög, óperuaríur og léttmeti, allt í réttum hlutföllum. Stefnt er að því að miðasala hefjist fljótlega eftir páska.

Fleiri fréttir