Norðurá farin að ganga nærri Skrapatungurétt
Norðurá er farin að ganga nokkuð nærri réttinni við Skrapatungu en Blönduósbær í samvinnu við Skagabyggð hefur staðið fyrir endurbótum á réttinni.
Byrjað var á viðgerð réttarinnar í fyrra og fór sú viðgerð nokkuð fram úr kostnaðaráætlun. Þrátt fyrir það er þörf á því að halda viðgerðinni áfram og sér í lagi klára það sem byrjað var á. Landbúnaðarnefnd Blönduósbæjar hefur kallað eftir ítarlegri áætlun um hvað gera þurfi í kringum réttinni auk forgangsröðunar verkefna.Þá er áætlað að sækja um í Landbrotssjóð þar sem Norðurá er farin að ganga nærri réttinni.