Norðurland á topp 10 lista hjá Lonely Planet
Lonely Planet hefur sett Norðurland á lista yfir topp 10 áfangastaðina árið 2013. Umfjöllun um þetta var m.a. á CNN í gær.
Lonley Planet setti Norðurland á Íslandi í þriðja sæti á lista sinn yfir topp tíu áfangastaðina árið 2013. Þar eru ferðamenn m.a. hvattir til að skoða fleiri staði heldur en Bláa Lónið, hverina, Gullfoss, Geysi og hina hefðbundnu ferðamannastaði.
Andy Murdock, ritstjóri Lonely Planet, sagði fáa áfangastaði laða jafn marga ferðamenn til sín líkt og Ísland gerir þetta árið.
Líney Arnórsdóttir, verkefnastjóri Íslandsstofu, sagði Norðurland hafa upp á mjög mikið að bjóða, allt frá fallegum fossum til heillandi sjávarþorpa, útilauga og fyrsta flokks skíðasvæða.
Hér er hægt að sjá greinina sem birtist hjá CNN.