Norðvesturþrenna golfklúbbanna

Norðvesturþrennan er árleg sameiginleg golfmótaröð golfklúbbanna á Norðurlandi vestra. Um er að ræða Golfklúbb Sauðárkróks, Golfklúbb Skagastrandar og Golfklúbbinn Ós.

 

Í ár voru haldin þrjú mót, það fyrsta var 17. júní á Skagaströnd, annað mótið var 30. júlí á Sauðárkróki og það þriðja þann 20. ágúst á Blönduósi. Samtals tóku tæplega 90 keppendur þátt í mótunum þremur. Sigurvegarar hvers móts hlutu verðlaun fyrir hvert mót en einnig voru veitt sameiginleg verðlaun í þremur flokkum fyrir mótin. Úrslit urðu sem hér segir:

 

Opinn flokkur með forgjöf:

  • Jón Jóhannsson                  GÓS       100 punktar
  • Einar Einarsson                   GSS          99 punktar
  • Sigríður Elín Þórðardóttir       GSS          90 punktar

 

Kvennaflokkur án forgjafar:

  • Sigríður Elín Þórðardóttir         GSS       51 punktur
  • Guðrún Ásgerður Jónsdóttir     GÓS       50 punktar
  • Jóhanna Guðrún Jónsdóttir      GÓS       29 punktar

 

Karlaflokkur án forgjafar:

  • Jón Jóhannsson                      GÓS       73 punktar
  • Einar Einarsson                      GSS        71 punktur
  • Haraldur Friðriksson                GSS        71 punktur

Fleiri fréttir