Ný heimasíða Heimilisiðnaðarsafnsins
Nú í ársbyrjun var opnuð ný heimasíða Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi, enda sú gamla fyrir nokkru orðin barn síns tíma. Þar er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um starfsemi safnsins, en auk almennrar umfjöllunar munu birtast tilkynningar um viðburði í safninu eftir því sem við á.
Sérstaklega er gerð grein fyrir föstum sýningum safnsins sem og sérsýningum textíllistafólks sem sýnt hefur í safninu allt frá því nýtt safnhús var opnað árið 2003. Slóðin er www.textile.is
/fréttatilkynning