Ný heimasíða SAH afurða
SAH Afurðir á Blönduósi hafa tekið í gagnið nýja heimasíðu með það að markmiði að bæta aðgengi viðskiptavina, hvort sem er innleggjenda eða kaupenda afurða. Meðal nýjunga er pöntunarform fyrir viðskiptavini sem eru í reikningsviðskiptum. Þar geta, til dæmis kjötvinnslur, sett inn pöntun í stað þess að senda tölvupóst eða hringja.
Á vef SAH Afurða segir að þetta eigi vafalaust eftir að spara tíma og fyrirhöfn. Þar segir einnig að áhersla sé lögð á að koma greinargóðum upplýsingum um vöruúrval fyrirtækisins á framfæri. Undir valmyndinni vörur eru upplýsingar um algengustu vörutegundir SAH Afurða og hvað er til á hverri stundu. Sé einhver ákveðin vara eða vörutegund uppseld verða upplýsingar um það í þessari valmynd. Þá segir á vefnum að vörusíða sé í vinnslu sem stendur.