Ný heimasíða UMF Fram
Ungmennafélagið Fram á Skagaströnd hefur opnað nýja heimasíðu. Hún er fyrst og fremst hugsuð til þess að safna saman myndum sem til eru úr starfi félagsins. Vitað er að margir eiga myndir sem þeir hafa tekið bæði á stafrænu formi og á filmu.
Stjórn Fram þykir vænt um ef fólk væri tilbúið að deila þessum myndum með þeim og getur það haft samband við Elvu í síma 452 2761.
Veffang heimasíðunnar er: http://fram.123.is/.
