Ný Húnavaka komin í verslanir
51. árgangur Húnavökunnar er kominn út og er nú hægt að nálgast ritið í Samkaup á Blönduósi og Skagaströnd. Ritið er að venju stútfullt af kveðskap, æviminningum, viðtölum, smásögum og öðru sem auðgar manninn. Að þessu sinni er aðalviðtal ritsins við þau hjón Magnús Ólafsson og Björgu Þorgilsdóttur oftast kennd við Sveinsstaði.
Í ávarpi ritstjóra segir m.a. „Án menningar væri mannlífið mun fábreyttara og fátækara. Orðið menning hefur svipaða merkingu og orðið menntun, þ.e. að verða að manni. Menning veitir þeim lífsfyllingu sem hana stunda og njóta.“
Húnavakan kostar 4.000,- kr. Það er Ungmennasamband Austur Húnvetninga sem gefur ritið út eins og alltaf.