Ný skólanefnd FNV skipuð
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur skipað nýja skólanefnd Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og samkvæmt heimasíðu FNV gildir skipunin til fjögurra ára.
Nefndina skipa:
Aðalmenn án tilnefningar:
Skúli Þórðarson
Bjarni Jónsson
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir
Aðalmenn samkvæmt tilnefningu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra:
Adolf H. Berndsen
Ásta Pálmadóttir
Varamenn án tilnefningar:
Sigurbjörg Jóhannesdóttir
Jón Ægir Ingólfsson
Arnþrúður Heimisdóttir
Varamenn samkvæmt tilnefningu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra:
Stefán Vagn Stefánsson
Jóhanna Guðrún Jónasdóttir
Fyrsti fundur nýrrar nefndar hefur verið boðaður 12. desember.