Ný skólastefna Blönduósbæjar
Bæjarstjórn Blönduósbæjar samþykkti á fundi sínum í vikunni nýja skólastefnu og er hún aðgengileg á vef sveitarfélagsins. Drög að skólastefnunni voru til umfjöllunar á fundi bæjarstjórnar 16. nóvember síðastliðinn og samþykkti bæjarstjórn þá að kynna hana fyrir íbúum og kalla eftir athugasemdum. Engar athugasemdir bárust og því hefur skólastefnan verið samþykkt.
Fram kemur í skólastefnunni að hún skuli höfð að leiðarljósi við gerð skólanámskráa og vera stjórnendum bæjarfélagsins leiðarvísir um uppbyggingu skóla. Skólastefnan sé jafnframt nauðsynleg heimilunum til að fylgjast með markmiðum og framkvæmd skólastarfs. Í ört breytilegu samfélagi þurfi að endurskoða skólastefnuna reglulega, að minnsta kosti á þriggja ára fresti.
Í stefnuyfirlýsingu í skólastefnunni kemur fram að stefna Blönduósbæjar í skóla- og uppeldismálum sé að tryggja nemendum aðgang að góðri og fjölbreyttri menntun í öruggu starfsumhverfi þannig að nemendur eigi kost á menntun við sitt hæfi og að komið sé í veg fyrir hvers konar mismunun.
Þá segir í stefnuyfirlýsingunni að skólar Blönduósbæjar leggi áherslu á jafnan rétt til náms, umhyggjusemi og vellíðan nemenda. Með siðvit, bókvit og verkvit að leiðarljósi fái sérhver nemandi hvatningu til náms í samræmi við þroska sinn, áhuga, hæfileika og sköpunargleði.
Einnig segir í stefnuyfirlýsingunni að skólar Blönduósbæjar skuli skapa í samstarfi við foreldra sem bestar aðstæður til náms með hvetjandi starfsumhverfi, hæfileikaríku starfsfólki og virkum tengslum við samfélagið. Skólar Blönduósbæjar gegni því hlutverki að mennta ábyrga og hæfa þjóðfélagsþegna sem geti tekið virkan þátt í þróun eigin samfélags og stundað frekara nám. Skólarnir séu menntastofnanir í sífelldri þróun.
/Húni.is