Ný stjórn Samstöðu

Á landsfundi SAMSTÖÐU, sem fram fór á Hótel Hafnarfirði um helgina, var kosin ný stjórn flokksins. Birgir Örn Guðjónsson, lögreglumaður, er formaður flokksins en varaformenn eru: Pálmey H. Gísladóttir, móttökuritari, og Sigurbjörn Svavarsson, framkvæmdastjóri.

Aðrir í stjórn eru Vilhjálmur Bjarnason fasteignasali, Guðrún Indriðadóttir, skrifstofumaður, Jón Þórisson, arkitekt og framkvæmdarstjóri stofnunar Evu Joly, og Jón Kr. Arnarson, garðyrkjufræðingur og varaþingmaður (búsettur á Suðurlandi). Varamenn í stjórn eru: Þollý Rósmunds, blússöngkona, og Axel Þór Kolbeinsson, tölvutæknir.

Ályktun um aðildarviðræður við ESB var samþykkt á landsfundinum og hljóðar svo:

SAMSTAÐA telur afar brýnt að viðræðunum ljúki á þessu ári til að þær skyggi ekki á brýn kosningamál í næstu alþingiskosningum. Þessi kosningamál eru, að mati SAMSTÖÐU: lausn á skuldastöðu heimila og smærri fyrirtækja og leið til að afnema gjaldeyrishöftin sem tryggir almenna velferð og efnahagslegt sjálfstæði landsins.

Þess má geta að Þollý Rósmunds skrifaði greinina: Landsbyggðin í blóma sem birtist m.a. hér í Feyki

Pálmey H. Gísladóttir skrifaði svo greinina Samstaða með sjálfum sér og öðrum sem einnig birtist í Feyki

Fleiri fréttir