Nýjar reglur um brauðbari í verslunum
Í matvöruverslunum hefur brauðmeti ýmiskonar verið boðið til sölu óinnpakkað í sjálfsafgreiðslu og flokkast sem „matvæli tilbúin til neyslu“ þ.e. matvæli sem fá enga meðhöndlun fyrir neyslu s.s. hitun eða skolun. Mikilvægt þykir að meðhöndla þessi matvæli með það í huga og verja fyrir mengun eða hindra að þau spillist á einhvern hátt.
Matvælastofnun hefur gefið út leiðbeiningar þar sem settar eru fram viðmiðunarreglur stofnunarinnar um sölu á óvörðu brauðmeti í sjálfsafgreiðslu svo tryggt sé að þær séu þær sömu um land allt. Leiðbeiningarnar eru ætlaðar bæði verslunum með brauðbari og heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga sem hefur eftirlit með þeim.
Í brauðbörum verður einungis leyfilegt að stilla fram vörum sem þola geymslu við stofuhita. Ekki er leyfilegt að bjóða upp á vörur sem innihalda rjóma eða aðrar fyllingar og sambærilegt skraut eða hjúp sem ekki má geyma við stofuhita með tilliti til matvælaöryggis.
Dæmi um vörur sem leyfilegt er að bjóða upp á eru brauð, brauðbollur, rúnstykki, kleinur, kanilsnúðar (ömmusnúðar), kleinuhringir, snúðar með glassúr, vínarbrauð, croissant, ostaslaufur og pizzasnúðar.
Ekki er leyfilegt að bjóða upp á matvæli sem halda á heitum, smurt brauð eða aðrar kælivörur í sjálfsafgreiðslu nema til staðar sé búnaður, sem er sérstaklega hannaður með öryggi þeirra matvæla í huga.
Sjá nánar HÉR