Nýjar stjórnir hjá Hvöt

Aðalfundir aðalstjórnar og knattspyrnudeildar Umf. Hvatar á Blönduósi voru haldnir sl. mánudag. Mæting var sæmileg og nýjar stjórnir tóku við stjórnartaumum. Ákveðið var að ráða framkvæmdastjóra fyrir knattspyrnudeild í heilsárs starf og einnig kom fram að ekki verður haldið úti meistaraflokki í sumar ólíkt því sem verið hefur til margra ára.

 

Ný stjórn eftirfarandi:

  • Hilmar Þór Hilmarsson formaður
  • Auðunn Steinn Sigurðsson varaformaður
  • Lilja Björg Gísladóttir gjaldkeri
  • Þórdís Erla Björnsdóttir meðstjórnandi
  • Ólafur Sigfús Benediktsson meðstjórnandi

Fundurinn hjá aðalstjórninni var haldinn strax á eftir. Ný stjórn aðalstjórnar Hvatar er eftirfarandi:

  • Auðunn Sigurðsson formaður
  • Hilmar Þór Hilmarsson meðstjórnandi
  • Berglind Björnsdóttir ritari
  • Valgerður Hilmarsdóttir gjaldkeri
  • Sædís Gunnarsdóttir meðstjórnandi

Fleiri fréttir