Nýprent og Feykir breyta afgreiðslutíma

Vegna Covid áhrifa og breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu verða breytingar á starfsemi Nýprents og Feykis næstu þrjá mánuðina. Vegna minnkaðs starfshlutfalls starfsfólks verður afgreiðslutíminn  styttur en opið verður milli klukkan 8 og 12 alla daga.

Lesendur Feykis mega eiga von á örlítið minna blaði frá og með næsta útgáfudegi meðan á þessu stendur. Fólk er hvatt til þess að senda auglýsingar og tilbúnar fréttatilkynningar á netföngin nyprent@nyprent.is og/eða feykir@feykir.is.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta getur valdið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir