Nýr brettagarður á skólalóð Blönduskóla
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
02.05.2014
kl. 09.02
Flottur brettagarður reis á skólalóð Blönduskóla fyrr í vikunni. Nemendur skólans hafa sótt mikið í svæðið síðan uppsetningu lauk og segir á vef Húna að gleðin skíni af öllum andlitum.
Eldri nemendur skólans hafa fengið það verkefni að aðstoða við að setja reglur sem allir þurfa að fylgja á brettapallinum og er fyrsta reglan sú að allir eru skyldugir til að nota hjálm.
Stefnt er að því að koma svo fljótlega upp tveimur körfuboltakörfum á skólalóðinni.