Nýr Feykir tileinkaður Lífsins gæði og gleði kemur út í dag

Nýr Feykir lítur dagsins ljós í dag og er blaðið stútfullt af efni tileinkuðu atvinnulífssýningu Skagafjarðar – Lífsins gæði og gleði, sem haldin verður með pompi og prakt um næstu helgi. Í blaðinu er einnig fjallað um menningarveisluna sem fylgir Sæluvikunni en hún hefst formlega nk. sunnudag.

Í blaðinu  er m.a. viðtal við Jón Eðvald Friðriksson framkvæmdastjóra FISK Seafood um þau straumhvörf sem hafa orðið í stefnu fyrirtækisins undanfarin misseri í átt að nýsköpun og vöruþróun.

Rætt er við Bjarna Jónsson, formann Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar svf. Skagafjarðar, um vinnu sveitarfélagsins undanfarin 10 ár að því að koma koltrefjaverksmiðju á koppinn í Skagafirði en slíkur iðnaður hefði gríðarlega þýðingu fyrir svæðið.

Stefán Vagn Stefánsson formaður byggðarráðs segir frá Mótun, nýstofnaðri plastbátaverksmiðju í Skagafirði en smíði fyrsta bátsins er hafin. Þá er fer Indriði Þór Einarsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs svf. Skagafjarðar, yfir fyrirhugaðar framkvæmdir Skagafjarðarveitna í sumar.

Fjallað er um Sæluvikustykkið Rjúkandi ráð sem Leikfélag Sauðárkróks setur á fjalirnar, stórsýninguna Tekið til kostana í reiðhöllinni Svaðastöðum, opnun hins nýja bars og gistiheimilis Microbar & bed á Sauðárkróki, Karlakórinn Heimi ásamt Kristni Sigmundssyni í Miðgarði og margt margt fleira.

Blaðinu verður dreift frítt á öll heimili á Norðurlandi vestra, Hólmavík og í þéttbýlum á Tröllaskaga. Hér má einnig sjá netútgáfu blaðsins.

Ekki Sjónhorn þessa vikuna

Vakin er athygli á því að Sjónhornið kemur ekki út þessa vikuna. Þeir sem vilja vekja athygli á viðburði eða slíku er sem fyrr bent á Feyki.is en þar er hægt að vera með auglýsingu og umfjöllun.

Fleiri fréttir