Nýr golfkennari hjá golfklúbbnum Ósi

Golfklúbburinn Ós er búin að fá golfkennara til liðs við sig, Huldu Birnu Baldursdóttur, í sumar. Í nýjasta eintaki Gluggans kemur fram að Hulda verður á svæðinu dagana  8. – 11. júní, 18. – 21. júní og 15. – 18. júlí. Ef næg þátttaka verður kemur hún einnig í ágúst.

Börnum og unglingum verður kennt í tvo tíma á dag þá daga sem hún er og kostar námskeiðið 6.000 krónur. Einnig verður veittur systkina- og fjölskylduafsláttur ef foreldrar ætla líka að skella sér í golfkennslu. Einnig verður boðið upp á nýliðanámskeið og tilvalið að skrá sig saman í fjögurra manna hóp.

Notið þetta einstaka tækifæri til að kynnast golfíþróttinni,“ segir í auglýsingunni, ásamt nánari upplýsingum, á forsíðu Gluggans.

Skráning og frekari upplýsingar eru gefnar á netfanginu jgjon@mi.is eða í síma 864 4846 (Jóhanna) fyrir 28. maí.

Fleiri fréttir