Nýr leikskólastjóri Húnabyggðar

Sigríður Bjarney Aadnegard
Sigríður Bjarney Aadnegard

Fram kemur á vef Blönduósbæjar að Sigríður Bjarney Aadnegard hefur verið ráðin leikskólastjóri og Kristín Birgisdóttir aðstoðarleikskólastjóri hjá leikskólum Húnabyggðar.
Sigríður mun hefja störf á fyrsta degi ársins 2023 og Þórunn Ragnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu leikskólastjóra þangað til.
Einnig hefur Aðalbjörg S. Sigurvaldsdóttir verið ráðin deildarstjóri á leikskólanum Vallabóli á Húnavöllum.

Fleiri fréttir