Nýr ráðgjafi hjá Virk Starfsendurhæfingarsjóði
Hanna Dóra Björnsdóttir er tekin til starfa sem ráðgjafi hjá Virk Starfsendurhæfingarsjóði á Norðurlandi vestra.
Hanna Dóra hefur aðstöðu hjá Öldunni Stéttarfélagi og Stéttarfélagi Samstöðu í Borgarmýri, en þjónustan sem hún kemur til með að veita er samvinnuverkefni stéttarfélaga og starfsendurhæfingarsjóðsins.
Hanna Dóra leysir af hólmi Svein Allan Morthens sem lætur af störfum um næstu áramót, er kemur fram á vefmiðlinum huni.is. Starf Hönnu Dóru felst í að hitta félagsmenn sem eru frá vinnu, vegna veikinda eða slysa, og aðstoða þá við að efla færni sína og vinnugetu.
Fram kemur á heimasíðunni Virk.is að Hanna Dóra hafi lokið lauk B.Ed. próf í grunnskólakennarafræði árið 2001 og mastersnámi í sálfræði frá Háskólanum í Árósum árið 2008. Hún hefur fjölbreytta starfreynslu að baki en starfaði síðast hjá hjá Fjölskylduþjónustu Skagfirðinga við verkefnisstjórnun, ásamt því að starfa við uppeldis- og sálfræðiráðgjöf hjá Fræðsluþjónustu Skagfirðinga.