Nýr slökkviliðsstjóri ráðinn hjá Brunavörnum A-Hún.

Stjórn Brunavarna Austur-Húnvatnssýslu hefur ráðið Jón Jóhannsson sem slökkviliðsstjóra Brunavarna A-Hún.  Ráðningin var samþykkt á stjórnarfundi BAH þann 6. júní síðastliðinn.

Jón hefur, að sögn Húna.is, gengt stöðu slökkviliðsstjóra frá 1. maí sl., þegar uppsagnarfrestur þáverandi slökkviliðsstjóra rann út. Hann hefur verið í slökkviliðinu um árabil og var varaslökkviliðsstjóri.

 

Fleiri fréttir