Nýrri samgönguáætlun innviðaráðherra fagnað
Byggðarráð Húnaþings vestra fagnar nýrri samgönguáætlun sem innviðaráðherra kynnti og lagði fram á Alþingi í byrjun desember. Áætlunin, sem er nú er til umsagnar hjá umhverfis- og samgöngunefnd, er fyrir árin 2026-2040 og henni fylgir fimm ára aðgerðaáætlun. Húnahornið segir frá því að byggðarráð Húnaþings vestra hafi skilað inn nokkuð ítarlegri umsögn um áætlunina og aðgerðaráætlunina en hún var rædd og samþykk á fundin ráðsins í gær.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Stólarnir sendu lið Álftaness í sumarfrí í fjörugum leik
Fresta þurfti leik Tindastóls og Álftaness á föstudaginn þar sem gestir og dómarar komust ekki norður sökum ófærðar. Leikurinn fór því fram seinni partinn í gær og var hinn fjörugasti. Álftesingar mættu sprækir til leiks enda urðu þeir að vinna leikinn til að eiga möguleika á sæti í úrslitakeppninna. Lærisveinar Hjalta Þórs Vilhjálmssonar leiddu lungann úr leiknum en á lokakaflanum reyndust heimamenn svalari, gestirnir fóru að gera slæm mistök og Stólarnir hirtu stigin tvö og halda því í annað sæti deildarinnar. Lokatölur 115-104.Meira -
Fjallabyggð vill að Alþingi tryggi framgang samgönguáætlunar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 22.03.2026 kl. 01.14 oli@feykir.isSem betur fer hefur veðráttan verið okkur hliðholl í vetur og sjaldan gert stór veður. Engu að síður hefur Siglufjarðarvegur lokast nokkuð oft vegna snjóflóða og snjóflóðahættu. Nú síðustu vikur hefur veðrið þó minnt rækilega á sig og snjóflóð fallið bæði við Strákagöng og í Ólafsjarðarmúla sem hefur jafnvel gert það að verkum að íbúar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar hafa verið innilokaðir. Af þessum sökum hefur sveitarstjórn Fjallabyggðar sent frá sér ályktun sem var send þingmönnum Norðausturkjördæmis, þingmönnum Norðvesturkjördæmis, Innviðaráðherra og ráðuneytum oddvita ríkisstjórnarflokka á Alþingi og þeir beðnir að tryggja framgang fyrirliggjandi samgönguáætlunar á Alþingi.Meira -
Stólastúlkur með öruggan sigur á Ármanni
Kvennalið Tindastóls fékk lið Ármanns í heimsókn á laugardagskvöldi í næstsíðustu umferð Bónus deildarinnar. Lið Ármanns var þegar fallið í 1. deild en hefur bitið frá sér í síðustu leikjum. Það hefur einnig verið góður sstígandi í leik Stólastúlkna og þær leiddu frá fyrstu mínútu til leiksloka og má segja að sigurinn hafi aldrei verið í hættu þrátt fyrir sterkt áhlaup gestanna í upphafi síðari hálfleiks. Lokatölur 95-69.Meira -
Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands? | Erna Bjarnadóttir skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 21.03.2026 kl. 22.20 oli@feykir.isÞegar Írland gekk í Evrópubandalagið árið 1973 (forvera Evrópusambandsins, ESB) var sameiginlega sjávarútvegsstefnan enn í mótun. Í aðildarviðræðunum lagði Írland mikla áherslu á stöðu strandbyggða og verndun nálægra fiskimiða. Niðurstaðan varð sú að m.a. var kveðið á um takmarkaðan aðgang annarra aðildarríkja EB að 6 og 12 sjómílna belti við strendur landsins.Meira -
D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra í Húnabyggð
Fundur var haldinn 19. mars hjá Sjálfstæðismönnum og óháðum í Húnabyggð. Uppstillinganefnd lagði fram tillögu að framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram 16. maí nk. Tillagan var samþykkt samhljóða.Meira
