Nýtt nám í gestamóttöku og stjórnun við ferðamáladeild
Í tilefni af tuttugu ára starfsafmæli Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum var mánudaginn 3. október haldin afmælisráðstefna undir yfirskriftinni „Menntun framtíðarleiðtoga í ferðaþjónustu“. Þar var tilkynnt að frá og með haustinu 2017 fyrirhugar deildin að bjóða upp á nám til BA gráðu í gestamóttöku og stjórnun (e. hospitality management). Með því er leitast við að mæta þörfum atvinnugreinarinnar fyrir menntað starfsfólk og stjórnendur á þessu sviði. Sem fyrr mun deildin bjóða það nám sem fyrir er þ.e. nám til BA gráðu í ferðamálum með áherslu á náttúru og menningu, diplómur í viðburðastjórnun og ferðamálafræði sem og rannsóknatengt meistaranám í ferðamálafræði.
Á ráðstefnuna sem fram fór á Grand Hótel í Reykjavík mættu um 90 manns. Fjölbreytt erindi voru flutt af aðilum úr stjórnkerfinu, atvinnulífinu og háskólaumhverfinu. Ávörp fluttu Erla Björk Örnólfsdóttir rektor Háskólans á Hólum, Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra ferðamála, Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra og Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri. Framsögur fluttu Laufey Haraldsdóttir deildarstjóri ferðamáladeildar, Þórir Erlingsson kennari í stjórnun gestamóttöku við Michael A. Leven School of Culinary Stustainability and Hospitality, Kennesaw State University, USA og Reidar J. Mykletun prófessor við háskólann í Stavanger sem hefur um langt skeið boðið nám á sviði gestamóttöku. Aðilar úr ferðaþjónustu fluttu einnig framsögur en það voru þau Jónas Guðmundsson frá SafeTravel, Erna Dís Ingólfsdóttir, Íslandshótelum, Ágúst Elvar Bjarnason, Arctic Adventures og Ingibjörg Ólafsdóttir, Radison Blu Hótel Saga.
Pallborðsumræðum um hvert við viljum stefna varðandi menntun í ferðaþjónustu á Íslandi stýrði Guðrún Þóra Gunnarsdóttir forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála. Þáttakendur í pallborðinu voru Óskar Jósefsson, Stjórnstöð ferðamála, Gunnar Jóhannesson Land- og ferðamáladeild Háskóla Íslands, María Guðmundsdóttir, Samtökum ferðaþjónustunnar, Baldur Sæmundsson, Menntaskólanum í Kópavogi og Ingibjörg Sigurðardóttir, ferðamáladeildar Háskólans á Hólum.
Í máli fundarmanna kom skýrt fram þörf ferðaþjónustunnar sem atvinnugreinar fyrir menntað og vel þjálfað starfsfólk og stjórnendur. Áhersla var lögð á að samhliða hinum gríðarlega vexti greinarinnar yrði að efla færni og þekkingu starfsmanna til að mögulegt væri að tryggja gæði og fagmennsku í þjónustu við gesti. Var í því sambandi litið til eflingar náms í ferðatengdum greinum á öllum skólastigum og aukins samstarfs milli þeirra sem koma að menntun í ferðaþjónustu.
/Fréttatlkynning
Myndir hér fyrir neðan eru frá afmælisráðstefnunni á Grand Hótel.