Nýtt skjáupplýsingakerfi ferðamanna
Í gær var tekið í notkun nýtt skjáupplýsingakerfi SafeTravel. Á vef Landsbjargar kemur fram að upplýsingagjöf til ferðamanna er eitt mikilvægasta tækið þegar kemur að forvörnum, sérstaklega í landi eins og Íslandi þar sem veður breytast hratt og náttúran spilar stærri þátt í ferðalaginu en víða annarsstaðar.
Skjáupplýsingakerfið byggir á því að settir verða upp skjáir á allt að 30 helstu viðkomustöðum ferðamanna víðsvegar um landið; á stærri upplýsingamiðstöðvum, umferðamiðstöðvum, flugvöllum, stærri gististöðum og bensínstöðvum. Um er að ræða byltingu í upplýsingagjöf til ferðamanna hér á landi, ekki síst vegna þess hversu víðtækt samráð ýmissa aðila, svo Vegargerðarinnar, Veðurstofu, almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, ferðaþjónustunnar og fleiri, liggja að baki átaksins.
Fyrsti skjárinn var tekinn formlega í notkun hjá Olís í Norðlingaholti í gær af ráðherra ferðamála, Ragnheiði Elínu Árnadóttur.
Útlit mun verða samræmt en upplýsingarnar sem birtast staðbundnar. Þannig gæti skjár í Staðarskála t.d. sýnt færð á Holtavörðuheiði á vefmyndavél og á korti yfir Norðvesturland, svo dæmi sé tekið. Einnig verða birt almenn ferðaheilræði, svo sem varðandi akstur, gönguferðir, þverun straumvatna, neyðarnúmerið 112 og fleira í þeim dúr. Í tilfellum þar sem stór vá væri fyrir höndum gæti viðvörun um slíkt tekið yfir allan skjáinn eða hluta hans.
„Er það von Slysavarnafélagsins Landsbjargar og allra þeirra aðila sem koma að SafeTravel verkefninu að með kerfinu verði hægt að auka upplýsingagjöf til ferðamanna og þar með öryggi þeirra og ánægju,“ segir á heimasíðunni.
Heimild: Landsbjörg.is