Óánægja með aukinn kostnaðarhlut Blönduóssbæjar í Brunavörnum A-Hún
Á fundi stjórnar Brunavarna A-Húnavatnssýslu í síðustu viku voru lagður fram ársreikningur fyrir 2010 en þar kemur fram að rúmlega einnar miljóna króna tap var á rekstrinum.
- Helstu niðurstöður ársins eru:
- Tekjur krónur 3.441.039
- Rekstrargjöld krónur 28.728.330
- Framlög sveitarfélaga krónur 24.303.803
- Niðurstaða ársins, tap krónur (1.033.370)
- Eigið fé í árslok krónur (773.485)
Í starfsskýrsla slökkviliðsstjóra kom fram að frá byrjun júlí til loka ágústmánaðar í ár eru útköll hjá BAH orðin alls nítján. Haldnar hafa verið níu æfingar það sem af er ársins 2010 m.a. við Stóra-Búrfell þar sem BAH fékk að kveikja í gömlum sumarbústað til æfingar. Jafnframt var haldin æfing í Blönduvirkjun þar sem reykköfun var æfð.
Fundarmenn ræddu um kostnaðarskiptingu sveitarfélaga sem standa að Brunavörnum A-Hún. Blönduósbær lýsti yfir óánægju sinni að sveitarfélagið skuli bera aukinn kostnaðarhlut af samstarfinu og óskar eftir að horft verði til kostnaðarskiptingu sem er að finna í öðrum samstarfssamningum um sameiginleg verkefni í A-Hún. Aðilar eru sammála um að ljúka endurskoðun fyrir árslok.