Óásættanlegt ástand Blöndubrúar
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
30.09.2013
kl. 08.42
Á fundi bæjarráðs Blönduósbæjar á fimmtudag var rætt um slæmt ástand þjóðvegarins í gegnum Blönduósbæ. Þykir ástand brúarinnar með öllu óásættanlegt. Brúin er ekki nægjanlega breið fyrir akandi umferð og hættuleg fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Telur bæjarráð að úrbóta sé þörf strax. Á fundinum var bæjarstjóra og tæknideild falið að ræða við Vegagerðina um málið.