Óbreyttar sóttvarnaráðstafanir til 9. desember

Mynd: Landspítali.
Mynd: Landspítali.

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildandi reglugerðir um takmarkanir á samkomum og skólastarfi óbreyttar til miðvikudagsins 9. desember næstkomandi. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að þetta sé gert í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis sem ræður gegn því að slaka á sóttvörnum núna vegna þess hvernig faraldurinn hefur þróast síðustu daga.

Í minnisblaði sóttvarnalæknis, dags. 29. nóvember, var gert ráð fyrir því að hægt yrði að ráðast í varfærnar tilslakanir á gildandi sóttvarnalögum 2. desember og kynntar voru ákveðnar hugmyndir þar að lútandi fyrir ráðherra fyrir viku. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að sóttvarnalæknir hafi þó sett fyrirvara um að hann áskildi sér rétt til að endurskoða tillögur sínar um tilslakanir ef þróun faraldursins myndi breytast enda kemur fram hjá sóttvarnalækni að undanfarið hafi orðið breytingar á faraldrinum. Upp hafi komið hópsýkingar og smitum fjölgað og svo virðist sem fjöldi þeirra sem greinast utan sóttkvíar stefni í línulegan vöxt og hugsanlegan veldisvöxt, sbr. minnisblað sóttvarnalæknis.

„Tillaga hans er sú að engar breytingar verði gerðar á gildandi sóttvarnaráðsstöfunum, þ.e. takmörkunum á samkomum og skólastarfi næstu eina til tvær vikur. Við endurskoðun sóttvarnaráðstafana sem hefjast þegar í stað, verður meðal annars horft til þess hvort tilefni sé til að gera tilslakanir á landsbyggðinni umfram höfuðborgarsvæðið í samræmi við hugleiðingar sóttvarnalæknis í meðfylgjandi minnisblaði, dags. 30. nóvember.“

Sem fyrr segir felur ákvörðun ráðherra í sér óbreyttar sóttvarnaráðstafanir til og með 9. desember.

Minnisblað sóttvarnalæknis, dags. 29. nóvember
- viðbót við minnisblaðið

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir