Of mörg grásleppunet í sjó

Fiskistofa í samstarfi við Landhelgisgæsluna hefur haft eftirlit með fjölda grásleppuneta í sjó hjá bátum sem stunda grásleppuveiðar.  Á dögunum var farið um borð í grásleppubáta  úti fyrir Norðurlandi eftir að skoðun á gögnum og veiðarfærum á veiðislóð gáfu vísbendingar um að netafjöldi væri  umfram leyfilegan fjölda.

Eftirlitsmenn Fiskistofu fóru um borð hjá þessum aðilum og voru viðstaddir er öll netin voru dregin. Í framhaldi að því var aðilum gert að færa öll net sem voru umfram leyfilegan fjölda í land. Talning eftirlitsmanna Fiskistofu  leiddi í ljós að fjöldi neta í sjó var langt umfram það sem heimilt er. Jafnframt voru gerðar nokkrar athugasemdir við merkingar veiðarfæra. Nokkur mál  hafa verið kærð til lögreglu ásamt því að vera til meðferðar hjá Fiskistofu.

Fiskistofa og Landhelgisgæslan munu halda þessu samstarfi áfram með það að markmiði að reglum um hrognkelsaveiðar sé framfylgt.

Fleiri fréttir