Ófærð og leiðinda veður
Leiðindaveður er núna á Norðurlandi vestra og búist er við stormi með vindhraða meiri en 20 m/s á landinu í dag. Ekkert ferðaveður er í boði enda vegir víða illfærir og ófært er á fjallvegum. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er ófært á Holtavörðuheiði og á veginum milli Skagastrandar og Blönduóss þá er Vatnsskarðið ófært, sem og Siglufjarðarvegur og Öxnadalsheiði.
Veðurspáin fyrir Strandir og Norðurland vestra er á þá leið að í dag verður norðan 18-25 m/s og snjókoma. Frost 0 til 5 stig. Hægari og úrkomuminna síðdegis á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Norðan 15-23 m/s, en fer að lægja seinni partinn. Snjókoma fyrir norðan og rigning eða slydda A-lands, annars úrkomulítið. Vægt frost, en hiti 0 til 5 stig á S- og A-landi.
Á sunnudag:
Allhvöss norðvestanátt og él í fystu A-lands, annars mun hægari vestlæg átt og skýjað með köflum. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum á N- og A-landi, en frostlaust við S- og V-ströndina.
Á mánudag:
Suðvestanátt og hlýnandi veður. Fer að rigna á V-verðu landinu, en þurrt eystra.
Á þriðjudag:
Suðlæg átt og rigning, einkum S- og V-lands. Fremur hlýtt.
Á miðvikudag:
Norðlæg átt og rigning eða slydda, en úrkomulítið SV-lands. Heldur kólnandi.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu eða slyddu víða um land.
HÉR er hægt að sjá vefmyndavélar Vegagerðarinnar á Norðurlandi vestra.