Ófært á Holtavörðu- og Öxnadalsheiði

Vegna ófærðar og óveðurs á Öxnadals- og Holtavörðuheiði hefur áætlunarbílum Sternu sem áttu að fara frá Reykjavík til Akureyrar og frá Akureyri til Reykjavíkur kl. 08:30 verið frestað. Ákveðið verður kl. 11:00 hvort farið verður kl. 12:00.

 

Spá Veðurstofu Íslands fyrir daginn í dag á Norðurlandi vestra: Suðvestan 13-20 m/s og éljagangur, en bjart með köflum A-lands. Dregur heldur úr vindi í kvöld. Snýst í norðan 8-15 og fer að snjóa N- og A-lands á morgun. Hægt kólnandi veður.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Suðvestan 8-13 m/s og él, en gengur í norðan 8-13 og með snjókomu N-lands síðdegis. Frost 1 til 10 stig, minnst syðst.

Á miðvikudag og fimmtudag:
Norðvestan 10-15 m/s við NA-ströndina, en annars hægari norðlæg átt. Él á N- og A-landi, en annars bjartviðri. Talsvert frost.

Á föstudag:
Norðanátt og él N- og A-lands, en annars bjart. Áfram kalt í veðri.

Á laugardag:
Hægviðri og stöku él, en kalt í veðri.

Á sunnudag:
Útlit fyrir suðaustanátt með snjókomu.

Fleiri fréttir