Ófært á milli Ketiláss og Siglufjarðar

Ófært er á Siglufjarðarvegi milli Ketiláss og Siglufjarðar en verið að moka. Þar eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát vegna snjóflóðahættu. Hálka eða hálkublettir er á vegum á Norðurlandi og sumstaðar éljar og skefur.

Austlæg átt 8-15 m/s og stöku él er á Ströndum og Norðurlandi vestra. Hvessir í kvöld, norðaustan 15-25 í nótt og á morgun og snjókoma, hvassast og mest úrkoma norðantil. Frost 0 til 5 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:

Norðan 18-23 m/s og snjókoma á N-verðu landinu, en úrkomulítið syðra. Kólnandi veður og frost 2 til 7 stig um kvöldið.

Á laugardag:

Norðvestan 18-23 m/s og snjókoma A-lands. Annars 10-15 og él NV-til, en léttskýjað SV-lands. Lægir heldur með kvöldinu, fyrst V-til. Frost 3 til 13 stig, mest í innsveitum.

Á sunnudag:

Hæg breytileg átt, víða léttskýjað og talsvert frost, en vaxandi suðaustanátt og síðdegis, hvassviðri og snjókoma S- og V-lands með kvöldinu.

Á mánudag:

Ákveðin suðvestlæg átt með skúrum eða éljum, en hægari og birtir til A-lands seinni partinn. Hiti kringum frostmark.

Á þriðjudag:

Útlit fyrir norðaustlæga átt með éljum, einkum N- og A-lands og kólnandi veður.

Fleiri fréttir