Ófært á Öxnadalsheiði og frá Ketilási í Siglufjörð

Á Norðurlandi vestra eru vegi auðir í Húnavatnssýslum. Snjóþekja á Þverárfjalli og frá Sauðarkróki að Ketilási. Ófært er frá Ketilási í Siglufjörð og á Öxnadalsheiði unnið er að mokstri, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er éljagangur og norðaustan 8-15, hvassast á annesjum. Samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands verður austan 5-10 og úrkomulaust síðdegis og vægt frost. Suðaustan 3-8 á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:
Austan 5-10 m/s syðst, annars hægari vindur. Stöku él úti við sjóinn, einkum SV-til, en annars skýjað með köflum. Frost 0 til 14 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.

Á laugardag:
Sunnan 13-18 m/s með slyddu og síðar rigningu, en dálítilli snjókomu NA-lands. Hægari suðvestanátt og skúrir um hádegi, en allhvöss vestanátt og él undir kvöld. Hiti 0 til 6 stig síðdegis.

Á sunnudag:
Gengur í sunnan og suðaustan hvassviðri síðdegis með slyddu eða rigningu og hiti 1 til 5 stig S- og V-lands en annars mun hægari, úrkomulaust og vægt frost.

Á mánudag:
Útlit fyrir vindur snúist úr suðvestanátt í norðanátt seinnipartinn. Éljagangur, einkum norðantil síðdegis og hiti kringum frostmark.

Á þriðjudag:
Minnkandi norðanátt með éljum fyrir norðan og austan, en annars úrkomulítið. Hiti breytist lítið.

Fleiri fréttir