Ófært á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi

Á Norðurlandi vestra er að mestu autt í Húnavatnssýslum en ófært á Þverárfjalli og á Siglufjarðarvegi, utan Hofsós og er þar beðið með mokstur. Hálka og skafrenningur er á Vatnsskarði en ófært á Öxnadalsheiði en unnið að hreinsun, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 

Á Norðurlandi vestra er NA 15-25 m/s, hvassast N-til og stöku él. Snjókoma verður eftir hádegi. Spá Veðurstofu Íslands segir til um NA 15-23 á morgun, hiti kringum frostmark.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:
Norðaustlæg átt, 8-18, hvassast á annesjum norðanlands. Slydda eða snjókoma á N- og A-landi, él á Vestfjörðum en annars bjartviðri. Frostlaust við sjóinn annars frost 0 til 4 stig.

Á miðvikudag:
Norðaustan 5-15, hvassast á annesjum norðanlands. Éljagangur en bjartviðri sunnantil. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag og föstudag:
Austan eða breytileg átt, 3-10 m/s. Skýjað með köflum en úrkomulítið. Kólnar og frost yfirleitt 2 til 12 stig.

Á laugardag:
Suðaustan 10-18 og rigning eða slydda S- og V-lands en snjóar A-til síðdegis og hlýnar í veðri.

Á sunnudag:
Suðvestan 5-10 og slydduél S- og V-lands og hiti 0 til 4 stig en annars vægt frost.

Fleiri fréttir