Ófært á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi

Á Norðurlandi vestra er ófært og stórhríð á Þverárfjalli og á Siglufjarðarvegi, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þæfingur og stórhríð er á Öxnadalseiði, annars eru hálkublettir og skafrenningur á flestum leiðum.

Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðaustan 13-20 m/s og snjókoma með köflum í dag, einkum við ströndina. Dregur úr vindi á morgun. Hiti um frostmark.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:
Austlæg átt 5-13 m/s, en hægari A-til á landinu. Dálítil rigning eða slydda SV-lands og él fyrir norðan, annars úrkomulítið. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst, en vægt frost á N- og A-landi.

Á miðvikudag:
Austlæg átt og skúrir eða él á vestanverðu landinu, annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Heldur kólnandi.

Á fimmtudag:
Fremur hæg breytileg átt, skýjað með köflum og sums staðar dálítil él. Frost 0 til 7 stig, en 0 til 5 stiga hiti S-lands.

Á föstudag:
Vaxandi suðaustanátt, þykknar upp og fer að rigna SV- og V-lands. Hlýnandi veður.

Á laugardag:
Suðvestanátt og skúrir eða slydduél, en léttir til NA-lands. Hiti 1 til 6 stig.

Fleiri fréttir