Ófært á Þverárfjallsvegi

Á Norðvesturlandi er víða hálka eða hálkublettir en snjóþekja og skafrenningur á Siglufjarðarvegi. Ófært er á Þverárfjallsvegi. Norðaustan 10-18 m/s og él er við ströndina á Norðurlandi vestra, heldur hægari í kvöld. Vaxandi norðaustanátt síðdegis á morgun, 18-23 og snjókoma annað kvöld. Hiti um eða undir frostmarki.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:
Austan 10-18, hvassast S- og V-lands, en víða 8-13 síðdegis. Rigning S-til og á Austfjörðum, einnig á Vestfjörðum framan af degi, annars úrkomulítið. Hiti 1 til 6 stig, en kringum frostmark á N-landi.

Á miðvikudag:
Austan og suðaustan 5-13 m/s, hvassast SV-lands. Bjartviðri á N-verðu landinu, annars skýjað og rigning eða slydda S-til, einkum við ströndina. Hiti 0 til 5 stig S-lands og á Austfjörðum, en vægt frost annars staðar.

Á fimmtudag:
Norðaustanátt, rigning eða slydda um tíma SA-lands og dálítil él fyrir norðan, annars þurrt. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust við SA-ströndina.

Á föstudag og laugardag:
Norðaustanátt og él N- og A-lands, annars úrkomulítið. Hiti kringum frostmark, en frost 0 til 5 stig til landsins.

 

Fleiri fréttir