Ófært á Þverárfjallsvegi
Vegir á Norðurlandi eru víða auðir á láglendi en hálkublettir eða hálka á fjallvegum og víða inn til landsins. Ófært er á Þverárfjalli og á Siglufjarðarvegi milli Ketiláss og Siglufjarðar en verið er að opna.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er austan 8-13 m/s og skýjað, en stöku skúrir eða él við sjávarsíðuna. Suðvestan 5-10 og slydda eða snjókoma með köflum á morgun. Hiti 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Suðvestan- og sunnan 8-15 m/s á sunnan- og vestanverðu landinu, hvassast með ströndinni og slydda eða rigning með köflum. Hiti 0 til 5 stig. Annars hægara, skýjað með köflum, úrkomulítið og vægt frost.
Á fimmtudag og föstudag:
Stíf suðvestlæg átt með éljum, en hægari og skýjað með köflum á N- og A-landi. Hiti breytist lítið.
Á laugardag:
Suðlæg átt og él S- og V-lands, en annars bjart að mestu. Frost 0 til 5 stig N- og A-til en annars um eða yfir frostmarki.
Á sunnudag:
Útlit fyrir vaxandi austlæga átt með ofankomu SV- og S-lands, en annars þurrt að mestu. Áfram kalt í veðri.