Ófært og óveður á Öxnadalsheiði
Á Norðurlandi er flestir vegir á láglendi greiðfærir þó eru hálkublettir í Húnavatnssýslum. Hálkublettir og skafrenningur er á Þverárfjalli en ófært og óveður á Öxnadalsheiði.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er suðvestan 15-20, en 18-23 m/s í éljum fram eftir degi. Síðan dregur úr vindi, 10-15 á morgun, en 13-18 í éljum. Hiti um og yfir frostmarki.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á sunnudag (páskadagur):
Suðvestan 10-15 m/s og él, en heldur hægari og léttskýjað á Norðausturlandi. Hiti 0 til 5 stig, en víða næturfrost.
Á mánudag (annar í páskum):
Suðaustan 8-15 m/s við suðvesturströndina og dálítil slydda eða rigning suðvestan- og vestanlands, en hægari annars staðar og þurrt um landið norðaustanvert. Hlýnandi veður.
Á þriðjudag:
Suðaustan 8-15 m/s við suðvesturströndina og dálítil súld eða rigning með köflum, en hægari annars staðar og léttskýjað norðan- og norðaustanlands. Hiti að 10 stigum, hlýjast norðantil.
Á miðvikudag og fimmtudag (sumardagurinn fyrsti):
Austanátt og milt veður. Bjartviðri norðanlands, en dálítil væta sunnan- og suðaustantil.