Ofar leitar að sérfræðingum til starfa í gagnaverinu á Blönduósi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Lokað efni
06.05.2026
kl. 17.08
Séð yfir gagnaver Borealis á Blönduósi en myndin er frá því árið 2023 og talsvert hefur verið byggt á svæðinu frá því myndin var tekin. MYND: HÖSKULDUR B. ERLINGSSON
Ofar leitar að framsæknum og áreiðanlegum einstaklingum til að ganga til liðs við innviðateymi fyrirtækisins, sem sinnir rekstri, eftirliti og þjónustu við gagnaver víðs vegar um landið og þar með talið á Blönduósi. Í tilkynningu á Facebook-síðu Húnabyggðar segir að nú vanti að minnsta kosti ellefu starfsmenn í gagnaverið á Blönduósi sem hefja þurfi störf strax í sumar.
