Ófleygar gæsir á rölti um Blönduós

Lögreglan á Norðurlandi vestra vill vekja athygli ökumanna á því að á Blönduósi er mikið um ófleygar gæsir á rölti um bæinn og eiga það til að rölta út á veginn og þeim ferðum þarf að sýna tillitssemi. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Lögreglu Norðurlands vestra.

Stór hluti gæsanna eru ungar gæsir sem eru fææddar í Hrútey við Blöndu. Um helgina gerðist það óhapp að ökumaður sem var að koma inn í bæinn lenti inni í miðjum gæsarhóp og eftir lágu 26 gæsir, bæði dauðar og skaddaðar, sem þurfti svo að aflífa.

"Það vill enginn lenda í slíku. Góða ferð og komum heil heim," segir svo á fésbókarsíðunni.

Fleiri fréttir