Öflugt umferðareftirlit skilaði áfallalausri páskahelgi í umferðinni
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
18.04.2017
kl. 15.37
Lögreglan á Norðurlandi vestra var með öflugt umferðareftirlit um páskahelgina frá miðvikudegi fram á mánudag. Alls voru 134 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu á umræddu tímabili en alls hafa 227 ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur það sem af er aprílmánuði. Sá sem hraðast ók var mældur á 144 km hraða.
„Mikil umferð var um páskahelgina og því gleðilegt að umferðin gekk óhappalaust fyrir sig en engin umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu á umræddu tímabili. Leiða má að því líkum að mikil sýnileg löggæsla og öflugt eftirlit hafi skilað áfallalausri páskahelgi í umferðinni á Norðurlandi vestra,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.