Ók á handrið á Blöndubrú

Blöndubrú skemmdist við árekstur. Mynd/Húni.is.
Blöndubrú skemmdist við árekstur. Mynd/Húni.is.

Blöndubrú skemmdist í fyrrakvöld er ökutæki ók utan í handrið á gangstéttinni norðanmegin á brúnni og braut gler í handriðinu á 10-15 metra kafla. Þetta er annað óhappið við brúnna á 6 mánuðum. Húni.is greinir frá. 

Vegagerð ríkisins áformar að lagfæra brúnna, sem vígð var árið 1962. Þá verður gangbrautin sunnan megin á brúnni brotin og gólfið í brúnni steypt upp á nýtt.

Fleiri fréttir