Október verður mildur með suðlægum áttum og fremur hlýr

Þriðjudaginn 4. október 2016 komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar. Fundurinn hófst kl. 14:00. Fundarmenn voru 12 talsins. Fundinum lauk kl. 14:20. Fundurinn var óvenju stuttur þar sem félagar voru á einu máli um veðurfar og án nokkurrs vafa um veðurhorfur í mánuðinum. Að venju var farið yfir síðustu verðurspá og almenn ánægja með hversu vel hún hefði gengið eftir.
Nýtt tungl kviknaði 1. okt. í norðri kl. 00:12. Annað tungl kviknar í mánuðinum í SV. kl. 17:38 sunnudaginn 30. október er það vetrartungl. Fimm sinnum í októbermánuði eru vikudagarnir laugardagur, sunnudagur og mánudagur. Talið er að þetta gerist á u.þ.b. 800 ára fresti.
Október verður mildur með suðlægum áttum og fremur hlýr. Dálítil úrkoma verður í mánuðinum lang mest í formi rigningar, þó svo að snjóað geti í fjöll.
Veðurvísa otóber- og nóvembermánaðar.
Í október hefst skólinn
að bjóða börnum heim.
Í nóvember er náttlangt
í norðurljósageim.